Spíttbátur

Orðið spíttbátur hefur fengið nýja merkingu. Vel unnið mál af allra hálfu og frábært að ekkert hafi lekið út um rannsóknina.
mbl.is 50-60 kíló af amfetamíni í skútunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blessuð bæjarstjórnin

sá ekki sóma sinn í því að halda uppá þetta afmæli. Fannst það óþarfi. En þá kom Kjartan Björnsson til skjalanna og hristi eitt stykki stórglæsilega hátið fram úr erminni eins og honum einum er lagið. Til þess fékk hann aðeins 200 þúsund króna styrk frá bænum. Stórskrítið þar sem vorhátiðin á Eyrarbakka í vor fékk 700 þúsund. En blessuð bæjarstjórnin er allt of upptekin við að undirbúa byggingu á minnisvarðanum sínum, nýja miðbænum, til að vera að sóa tíma og peningum í svona afmæli og að maður tali nú ekki um að útvega leikskólapláss fyrir börnin okkar, þó til þess þurfi ekki annað en pólitíska ákvörðun um að opna deild á Hulduheimum sem hefur verið lokuð frá því að skólinn var vígður í fyrra. En svona er þetta bara. Það er eiginlega ekki hægt að segja að við höfum kosið þetta yfir okkur hér í Árborg því Framsókn og Samfylking töpuðu sínum meirihluta síðast, en stjórna nú með Vinstri Græna sem hækju, en Sjálfstæðisflokkurinn situr í minnihluta, vegna þess að samstarf við Framsókn gekk ekki. En nóg um það. Á meðan við höfum Kjartan og hans ótrúlega dugnað við að hressa uppá bæjarlífið, Sniglabandið heldur áfram að syngja um hvað Selfoss er og sýslumaðurinn heldur áfram að berjast fyrir bættri umferðarmenningu og færri glæpum (stundum með óhefðbundnum aðferðum) megum við íbúar Árborgar una glaðir við okkar. Er það ekki.
mbl.is Lok afmælishátíðar á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leit illa út.

Ég kom að þessu slysi og verð að segja að það leit ekki vel út ofan úr brekkunni. Steypubíll þversum í miðri u-beygjunni í kömbunum og tveir bílar illa farnir þar hjá. Þrír sjúkrabílar og einn lögreglubíll. Mér finnst eitthvað málum blandið við atburðalýsinguna í fréttinni  miðað við það sem ég sá og lýst var í sjónvarpsfréttum að steypubíllinn hefði snúist og lent á bílunum tveimur. En mikil mildi að ekki fór verr og vonandi grær hinn slasaði sára sinna fljótt og vel, en sjúkrabíllinn sem ég sá aka burt af staðnum  slökkti forgangsljósin áður en hann lagði af stað.

     Rétt er að minna á að það var slabb á Heiðinni í dag og leiðindafæri.  Ökum gætilega. 


mbl.is Harður árekstur í Kömbunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfurðuleg árátta

hjá sumu fólki að láta sér detta í hug að stjórna ökutæki undir áhrifum áfengis. Er þetta fólk ekki með öllum mjalla? Ölvunarakstur er ekkert annað en tilraun til manndráps, alveg handahófskennd og tilefnislaus. Ég skil ekki svona hegðun.

mbl.is Lögreglan hljóp uppi ölvaðan hjólreiðamann á flótta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigur.

Ég hef hingað til verið þekktur fyrir flest annað en áhuga á fótbolta. Ég verð þó að viðurkenna að ég fylgdist með gangi mála í þessum leik og líka leiknum gegn Spáni. Þó það hafi ekki breytt skoðun minni á íþróttinni verð ég að segja að ég er stoltur af árangri landsliðsins í þessum leikjum. Til hamingju strákar.

mbl.is Eiður: „Tileinkum Ásgeiri sigurinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurlandsvegurinn.

Umferðamál hafa mér lengi verið ofarlega í huga eins og þeir sem hafa litið hér inn hafa sjálfsagt tekið eftir. Það er svo sem eðlilegt, ég starfa sem vörubílstjóri og er þess vegna mikið á ferðinni, ek yfirleitt 200- 300 km á dag. Þess vegna bregður mér alltaf þegar ég heyri af alvarlegum umferðaslysum, hvað þá banaslysum eins og nú í kvöld. Hver orsök þessa slyss var veit ég ekkert um og læt mér fróðari menn um að meta og ætla ekki að vera með neinar getgátur þar um. En hitt er aftur staðreynd að þetta er annað banaslysið á þessum slóðum á þessu ári og vegurinn milli Selfoss og Hveragerðis hefur tekið fleiri mannslíf og gert fleiri örkumla en hægt er að réttlæta á nokkurn hátt. 

Ég veit að það er ekki hægt að kenna veginum um, flest sem gerist í umferðinni er af manna völdum, þeirra sem bílunum aka. Fólk ofmetur eigin getu eða ökutækja sinna, er illa fyrir kallað, veikist skyndilega, er jafnvel ölvað eða undir áhrifum eiturlyfja, fer ekki eftir umferðalögum og svo framvegis. En með því að bæta vegina má draga úr þeirri hættu sem mannlegi þátturinn skapar. Reykjanesbrautin var hættulegasti vegur landsins í mörg ár, þar urðu 4-5 banaslys á ári, flest þannig að bílar lentu framaná hvor öðrum, oft á verulegum hraða og í framúrakstri.  Þegar brautin var upplýst fjölgaði alvarlegum slysum hvort sem það var vegna aukins hraða eða aukinnar umferðar. En síðan hættulegasti hluti vegarins  var tvöfaldaður hafa ekki orðið þar banaslys, þó svo fréttir berist um að menn séu þar teknir fyrir hraðakstur á allt að 200 km hraða. Þetta segir meira en allar hagkvæmnirannsóknir heims um hvað gera þarf á Suðurlandsvegi. 

Margt hefur verið rætt og ritað um þennan veg, t.d. til hvers að tvöfalda veginn þegar að á báðum endum (við Rauðavatn og á Ölfusárbrú) eru þrengingar sem valda því að umferðin þokast varla áfram á álagstoppum, sérstaklega um helgar á sumrin. Því er til að svara að það þarf að aðskilja akstursstefnur á þessum vegi og það þarf að gera það almennilega. ekki einhvers konar asnalega vegriðslausn eins og í Svínahrauninu, heldur á svipaðan hátt og á Reykjanesbrautinni með bili á milli akbrautanna. Þá segir sig sjálft að það þurfa að vera tvær akreinar í hvora átt, einfaldlega vegna þess að það fara ekki allir jafn hratt yfir og þeir sem af einhverjum ástæðum þurfa að flýta sér, (Lögregla, sjúkrabílar etc) þurfa að komast framúr á öruggan hátt. Varðandi þrengingarnar á endunum, þá þarf mislæg gatnamót, ekki þessi bannsettu hringtorg alls staðar, og í framtíðinni verður hringvegurinn vonandi lagður um nýja brú á Ölfusá austan við Selfoss og gegnumstreymisumferðinni beint greiðari leið en um löngu sprungið og ónýtt gatnakerfi Selfossbæjar.

 Að lokum vil ég votta aðstandendum  mannsins sem fórst í slysinu í kvöld mína dýpstu samúð. 


Ég hélt

að nafnið hafi verið Höfðakaupstaður, ekki Höfðahreppur. Hefur reyndar alltaf fundist þetta full lítið bæjarfélag til að kallast kaupstaður. En til hamingju Skagstrendingar með nýtt nafn sem þó er gamalt og gróið.

mbl.is Nafni Höfðahrepps breytt í Skagaströnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju?????

Hækkar bensínið um leið og dollarinn og heimsmarkaðsverðið, en lækkar svo ekki aftur fyrr en eftir dúk og disk þegar dollarinn eða heimsmarkaðsverðið lækkar?

Er alltaf sama verð hjá öllum olíufélögunum nema þeim sem reka mannlausu stöðvarnar (þar munar alltaf 10 aurum milli stöðva svona til málamynda)?

Gerir ríkið ekkert í málinu, lækkar bensíngjald eða eitthvað þess háttar?

Af hverju er bensínverð svona hátt á Íslandi?

Við þessum spurningum er eitt og sama svarið: Allir vilja græða. Olíufélögin og ríkið líka. Þetta sama á við í Tryggingabransanum. Þetta verðum við bíleigendur víst bara að sætta okkur við, brosa og borga. 


mbl.is Bensínverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiljanlegt

Að mennirnir vilji ekki samþykkja svona kjör. Slökkviliðsmenn á landsbyggðinni eru flestir þannig settir að þeir eru í annarri vinnu sem þeir þurfa fyrirvaralaust að hlaupa frá ef útkall kemur. Þar að auki er viðurkennd staðreind að starf slökkiliðsmanna er það erfiðasta sem til er. Það eru algerlega forkastanleg vinnubrögð að skerða laun þessarra manna.
mbl.is Slökkviliðsmenn á Egilsstöðum segja upp starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Meterinn

Meterinn

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson
Bílstjóri og bullari af lífi og sál

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 20-02-08_16082
  • ...tur_sa_nyji
  • ...crerokee2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband