25.8.2009 | 09:52
Ekkert nýtt.
Þetta er ekkert nýtt. Við Selfyssingar höfum notið góðs af samkeppni í bensínverði allt frá því að Orkan og ÓB opnuðu þar. Rekstrarstjóri Esso sem þá var hamraði á yfirmönnum sínum og fékk að lækka verðið hjá sér, þá fylgdi Olís í kjölfarið, hinir lækkuðu aftur og svo framvegis. Þetta gekk um langa hríð allt þar til í vor þegar olíufélögin ,,misskildu" nýjar reglur um bensíngjald. Þegar vitleysan var leiðrétt fór verðið á Selfossi upp í það sama og í bænum. Nú virðist sem sagt að leikurinn sé byrjaður aftur og ekkert nema gott um það að segja. Svona á heiðarleg samkeppni að virka og vonandi gengur þetta sem lengst, þó þetta sé sennilega eina dæmið um heiðarlega samkeppni hjá olíufélögunum.
Góð eldsneytiskaup á Selfossi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Meterinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 690
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.