15.9.2007 | 23:47
Leit illa út.
Ég kom að þessu slysi og verð að segja að það leit ekki vel út ofan úr brekkunni. Steypubíll þversum í miðri u-beygjunni í kömbunum og tveir bílar illa farnir þar hjá. Þrír sjúkrabílar og einn lögreglubíll. Mér finnst eitthvað málum blandið við atburðalýsinguna í fréttinni miðað við það sem ég sá og lýst var í sjónvarpsfréttum að steypubíllinn hefði snúist og lent á bílunum tveimur. En mikil mildi að ekki fór verr og vonandi grær hinn slasaði sára sinna fljótt og vel, en sjúkrabíllinn sem ég sá aka burt af staðnum slökkti forgangsljósin áður en hann lagði af stað.
Rétt er að minna á að það var slabb á Heiðinni í dag og leiðindafæri. Ökum gætilega.
Harður árekstur í Kömbunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Meterinn
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 690
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Steypubíllinn var að loka veginum fyrir umferð...
GK, 15.9.2007 kl. 23:57
Takk fyrir þetta Guðmundur, Fannst líka eitthvað einkennilegt við staðsetninguna á honum miðað við að hann hefði snúist utan í hina bílana, en í fréttum ríkissjónvarpsins sem ég hlustaði á í bílnum rétt í þann mund sem ég kom að slysstaðnum var sagt að hann hafi snúist í hálku og rekist á a.m.k 2 bíla. Sennilega hefur einhver hringt inn sem hefur séð þetta úr álíka afstöðu og ég og málið ekki verið kannað betur.
Helgi Jónsson, 16.9.2007 kl. 00:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.