Færsluflokkur: Bloggar

Umferðin.

Annað banaslys ársins í umferðinni er staðreynd. Kona á besta aldri látin eftir harðan árekstur jeppa og vörubíls. Kona sem lætur eftir sig fjölskyldu og vini sem eiga um sárt að binda og vil ég votta þeim innilega samúð mína. 

  Það er ekki mitt verk að kryfja til mergjar hvað gerðist í þessu tiltekna slysi, það gera aðrir til þess bærir menn. Eflaust eru margir áhrifaþættir þar að verki. En af hverju þarf umferðin að taka þennan mikla toll? Er virkilega engin leið að afstýra þessu?  Ég hef verið að hugsa um þetta lengi. Vissulega er hægt að fækka slysum. Sum óhöpp og slys í umferðinni gerast á svo stórfurðulegan hátt að það er ekki hægt að ímynda sér annað en að það fólk sem á hlut að máli viti ekkert út á hvað það gengur að keyra bíl. Hegðun sumra í umferðinni er með ólíkindum. framúrakstur við stórhættulegar aðstæður að því að virðist til þess eins að leyfa þeim sem farið er framúr að sjá hvernig bíllinn sem hann sá framendann á í baksýnisspeglinum lítur út að aftan. Að minnsta kosti er það oft þannig að það græðast kannski u.þ.b 2 bíllengdir á næstu vegamótum. Hraðakstur er annað. Er ekki betra að koma örlítið of seint en að koma ekki? Svona má lengi telja. Oft sér maður það í umferðinni að fólk er alls ekkert með hugann við það sem það er að gera, alls konar aukabúgreinar við aksturinn, tala í símann, jafnvel lesa eða skrifa sms, borða, leita að geisladiskum, stilla útvarpið og svona mætti lengi telja. Ég vil taka það sérstaklega fram að ég gæti allt eins verið að lýsa sjálfum mér. Ég hef gerst sekur um alla þessa hluti og það oftar en einu sinni. En sem betur fer hef ég komist upp með það og sloppið ennþá, en hver veit hversu lengi það verður?

  Íslenska Vegakerfið er kafli út af fyrir sig. Af hverju eru vegir byggðir þannig upp nú til dags að það eru engar vegaxlir? jú reyndar er það svo að nýjir vegir í dag eru víst u.þ.b. einum og hálfum metra breiðari en þeir voru þegar það tíðkaðist að hafa axlir. en það er alls ekki nóg. Ef bíll bilar eða þarf að stoppa úti í kanti af einhverjum orsökum er enginn möguleiki að komast út úr aksturslínunni, heldur verður til hindrun sem getur valdið stórslysi. Fjölfarnar leiðir eins og Suðurlandsvegur og Vesturlandsvegur eru löngu sprungnar undan álagi á meðan stórfé er lagt í gangagerð fyrir ca 1000 manna byggðarlög.  Margt fleira mætti telja upp og hver veit nema ég geri það einhvern tíma seinna, en niðurstaðan er sú að ég er þess fullviss að með því að fólk fari nú að taka sig saman í andlitinu og hafa hugann við aksturinn og haga honum eftir aðstæðum getum við flýtt fyrir því að slysunum fækki. Við höfum ekki efni á því að bíða eftir að stjórnvöld fari að forgangsraða rétt í samgöngumálum. Ökum varlega. 


Ógeðfelld íþrótt

Nautaat er að mínu mati ein ógeðslegasta íþróttagrein í heimi. Nautin eru stungin með spjótum og reitt til reiði og sigur vinnst þegar nautið liggur dautt. Þess vegna hef ég lúmskt gaman af þeim fáu skiptum sem nautið vinnur.
mbl.is Nautabani slasaðist alvarlega á Fallas-hátíðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt slysið

Vonandi er það rétt að meiðslin séu ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og þeir sem lentu í þessu slysi nái sér að fullu

mbl.is Bílslys á Suðurlandsvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt

Fyrsta banaslysið í umferðinni er staðreynd. Vissulega var gott að geta glaðst yfir 2 mánuðum án banaslysa og vonandi verður langt í það næsta. Stöndum saman um bætta umferðamenningu og gerum það sem í okkar valdi stendur til að fækka slysum. Við höfum ekki efni á að bíða eftir því að vegakerfið verði lagfært. Ég votta aðstandendum hins látna innilega samúð mína.
mbl.is Banaslys í Hörgárdal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erill

Nóg að gera hjá Selfosslöggunni. Það eru álagstoppar hér á þessu svæði um helgar. Einhvern veginn er þó hálkan að stríða fólki og virðist sem menn séu ekki í stakk búnir til að mæta henni. Ég hef alltaf haft efasemdir um gildi víraleiðaranna í miðjunni á nýja kaflanum á Hellisheiðinni. Þeir koma jú líklega í veg fyrir að bílar lendi á öfugri akrein ef eitthvað kemur uppá, en spurningin er hvort þeir komu að gagni fyrir manninn sem ók á þá í gærkvöldi. Um þessa tvo sem keyrðu fullir og lentu útaf vil ég bara segja: Gott á þá og mikil mildi að ekki fór verr og ekki þeim að þakka.
mbl.is Þrjú umferðaróhöpp á Suðurlandi í gær og nótt; mikill erill undanfarið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnum aðgát

í umferðinni. Þegar hált er og slabb eða snjóföl þarf oft ekki mikið til að missa stjórn á bílnum og þá er ekki ólíklegt það næsta sem þú veist sé að þú ert einhvers staðar rúllandi fyrir utan veg.
mbl.is Bílvelta í Kömbunum; önnur við Litlu kaffistofuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beltin bjarga

Enn einu sinni sannast mikilvægi öryggisbeltanna. Það er ekki víst að svona vel hefði farið ef þessi maður hefði ekki nennt að framkvæma þessa einföldu og örstuttu athöfn sem það er að spenna beltin. Góð vísa er aldrei of oft kveðin, Spennum beltin, tryggjum öryggi barnanna í bílnum og ökum varlega og alltaf eftir aðstæðum.
mbl.is Bíllinn fór fjórar veltur en ökumann sakaði ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært...

Þetta er glæsilegt. Höldum áfram á sömu braut og látum sömu stöðu verða 1. apríl. Ökum varlega, sýnum tillitsemi og ábyrgð og þá tekst það. Ég tek undir þá tillögu sem kom fram í öðru bloggi við þessa frétt að skipta um bíla á skiltinu og setja heila bíla í stað þeirra sem nú eru. Síðan ef banaslys verður mætti setja þá gömlu á sinn stað. Vonandi tekst með réttri forgangsröðun í vegamálum að ná því markmiði að færa Ísland í fremstu röð meðal þjóða með fá umferðarslys.
mbl.is Ekkert banaslys í umferðinni það sem af er árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Meterinn

Meterinn

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson
Bílstjóri og bullari af lífi og sál

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 20-02-08_16082
  • ...tur_sa_nyji
  • ...crerokee2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband