Bráðsniðugt....

Og nauðsynleg þjónusta. Á örugglega eftir að koma í veg fyrir mörg ölvunarakstursbrot. En hvað segja leigubílstjórar við þessu?
mbl.is Skutlar bílnum heim úr bænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er naumast...

....hvað þeir ætla að taka sér langan tíma til að rífast um þetta. Ætli þetta verði ekki svipað með Suðurlandsveginn, það verði þrefað um legu kaflans milli Hveragerðis og Selfoss í svona 5 ár og vegurinn verði tilbúinn svona kringum 2020 eða eftir svona 25 banaslys.
mbl.is Tvöföldun gæti dregist í 4 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórgóðir söngvarar báðir tveir

Ég verð að játa það að svona söngvarakeppnir hafa átt verulegum vinsældum að fagna hjá mér og verið aðalástæðan fyrir því að ég hef keypt áskrift að Stöð 2. Í þessum keppnum (Idoli, X-factor og Bandinu hans Bubba) hafa oft komið fram verulega efnilegir söngvarar þó þeir hafi ekki alltaf lent í efstu sætunum. Furðulegt finnst mér þó að aðeins örfáir hafa gert eitthvað úr velgengni sinni í þessum þáttum, og þá helst þau sem hafa lent í öðru til fimmta sæti, en minna hefur heyrst í sigurvegurunum. Nema þá helst óæskilegar fréttir af einum þeirra sem ekki tengjast tónlist á neinn hátt.

 Vonandi verður þetta ekki svona með þá félaga Eyþór og Arnar. Þessir drengir eru frábærir söngvarar  sem báðir eiga framtíðina fyrir sér í tónlist svo framarlega að rétt sé haldið á spilunum. Arnar er fyrst og fremst rokksöngvari af Guðs náð og gæti sannarlega gert góða hluti á því sviði. Það sýndi hann best í flutningi sínum á ,,The Show must go on" með Queen sem hann flutti í einum þættinum og svo í lokalagi sínu í kvöld. Eyþór er aftur á móti miklu fjölhæfari söngvari, þó rokkið henti honum vel. Hann hefur sýnt það í keppninni að hann gæti sungið hvað sem er ef hann bara vill, og ef hann fær einhvern tíma nóg af rokki og poppi ætti hann að skella sér í klassíkina með þessa frábæru rödd og þá mætti vel segja mér að jafnvel sjálfur Kristján Jóhannsson mætti fara að vara sig.

 Ég vil óska þessum drengjum báðum innilega til hamingju með frábæra frammistöðu í þessum þáttum og eins og Bubbi sagði þá réttlætir það svo sannarlega tilveru svona þáttagerðar að finna tvo svona stórefnilega söngvara og koma þeim á framfæri svo ekki sé nú minnst á stelpurnar, Telmu og Birnu sem ég vona svo sannarlega að við fáum að heyra í í framtíðinni.


mbl.is Eyþór hreppti stöðuna í Bandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er vorið komið?

Spurning.  Ætli maður þurfi að eyða fleiri nóttum við snjómokstur þetta árið?

 


mbl.is Tveggja stafa tölur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn snjómokstur

Já ég var vakinn upp í morgun og beðinn um að fara að moka snjó. Ég spurði hvort það væri ekki komið sumar,en þá sagði viðmælandinn að það væri allt á kafi. Svo ég varð að fara, finna snjótönnina sem búið var að setja í sumargeymslu og byrja að búa aftur til fjöllin sem voru næstum því bráðnuð við Samkaup. Og það var bara þó nokkur snjór. Við feðgarnir bjuggum svo til snjókarl í garðinum þegar ég kom heim aftur. En þetta er víst ekki búið, ég þarf vist að fara út í kvöld eða nótt og moka við Fsu og fleiri staði. svo veturinn er víst ekki alveg búinn hjá mér.

  Þið sem eruð slóðar eins og ég og eruð enn á nagladekkjum. Gott hjá okkur.
 


mbl.is Hálka á Hellisheiði og í Þrengslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta klárast allt saman

Það kemur alltaf að því að verkin klárast, og hittist þannig á að þrír stórir áfangar náðust sama daginn í framkvæmdum sem ég hef komið nálægt, tveir í Kárahnjúkavirkjun og einn á Reyðarfirði. Það er ekki hægt annað en að viðurkenna að landslagið á báðum þessum stöðum er gerbreytt, hvað svo sem fólki finnst um þetta allt saman. Vonandi verða þessar framkvæmdi allar þjóðinni til heilla og þá sérstaklega þeim sem búa á austurlandi. Þá er tilgangnum náð er það ekki?

 


mbl.is Síðasta kerið gangsett í álveri Alcoa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrt fyllerí

Þetta fyllerí hefur verið manngreyinu dýrt, u.þ b 600 þúsund í sekt og sakarkostnað, stórskemmdur bíll og ómældur kostnaður og óþægindi vegna prófmissis í 4 ár. Ekki vildi ég þurfa að láta skutla mér eða taka leigubíl eða rútu hvert sem maður ætlaði að fara í 4 ár eftir eitt gott fyllerí. Hann gæti jú fengið sér reiðhjól og leyst stóran hluta vandans með því. En hann má bara teljast heppinn maðurinn að hafa ekki annaðhvort stórslasað eða drepið einhvern með þessu háttarlagi.
mbl.is Sekt fyrir að keyra ölvaður á brunahana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort var það?

Hálfhringur eða kvarthringur? Er ekki alveg að ná þessarri frétt

 


mbl.is Flugvél fauk á stæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vááááá

Mér finnst nóg að vera í 20m/s. Ég myndi ekki vilja reyna að standa þetta af mér.
mbl.is Mesta hviða 137 m/s
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Meterinn

Meterinn

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson
Bílstjóri og bullari af lífi og sál

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 20-02-08_16082
  • ...tur_sa_nyji
  • ...crerokee2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband